16.09.2021
Pure North Recycling hlýtur nýsköpunarverðlaun fyrir framúrskarandi lausn í plastmálefnum
Pure North Recycling hlaut Bláskelina 2021, viðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir framúrskarandi lausn við plastvandanum og gott fordæmi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, afhenti Berki Smára Kristinssyni, rannsókna- og þróunarstjóra hjá Pure North, verðlaunin á málþingi Plastlauss septembers í Veröld-húsi Vigdísar í dag.