Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Bráðabirgðaheimild

Hvað er bráðabirgðaheimild?

Bráðabirgðaheimild er tímabundin heimild fyrir starfsemi sem fellur undir lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir áður en starfsleyfi hefur verið gefið út fyrir starfseminni. Slík heimild er undantekning frá þeirri meginreglu að öll starfsemi sem fellur undir lögin skuli hafa gilt starfsleyfi.

Umhverfis- og orkustofnun er heimilt á grundvelli 7. gr. a. laga nr. 7/1998, í sérstökum undantekningartilvikum, að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild þegar brýn þörf er á að hefja eða halda áfram starfsemi.

Bráðabirgðaheimild fyrir starfsemi er veitt að hámarki til eins árs í senn og er heimilt að framlengja hana um allt að eitt ár að uppfylltum skilyrðum laganna.

Skilyrði fyrir veitingu bráðabirgðaheimildar

  • Fullnægjandi umsókn um starfsleyfi þarf að liggja fyrir hjá útgefanda starfsleyfis.
  • Mat á umhverfisáhrifum eða niðurstaða um matsskyldu þarf að liggja fyrir ef starfsemin fellur undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
  • Starfsemin þarf að vera í samræmi við gildandi skipulag samkvæmt skipulagslögum eða lögum um skipulag haf- og strandsvæða.
  • Að um sé að ræða undantekningartilvik þar sem brýn þörf er á að hefja eða halda áfram starfsemi.