Rekstrar- og þjónustuaðilar búnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir (F-gös) eiga að koma sér upp skrám og viðhalda í minnst fimm ár fyrir sérhvern hluta slíks búnaðar sem krafist eru að sé lekaprófaður, sbr. 6. gr. reglugerðar (ESB) nr. 517/2014um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir.
Í þessum skrám þarf að koma fram:
magn og tegund F-gassins (miðilsins) við uppsetningu
magn F-gass sem bætt er á búnaðinn við viðhald, þjónustu eða vegna leka
magn endurunninna eða endurnýttra F-gasa ásamt heiti og heimilisfangi endurvinnslu- eða endurheimtarstöðvarinnar ef notast er við slíka
magn endurheimtra miðla
heiti og skírteinisnúmer vottunar fyrirtækisins sem setti upp, þjónustaði, hélt við og, ef við á, gerði við eða úrelti búnaðinn
dagsetningar lekaprófana og niðurstöður þeirra
ef taka á niður búnaðinn, hvaða ráðstafanir voru gerðar til að endurheimta og farga kælimiðlinum
Tegund búnaðar sem krafist er að sé lekaprófaður sbr. 4. gr. reglugerðar (ESB) nr. 517/2014:
kyrrstæður kælibúnaður
kyrrstæður loftræstibúnaður
kyrrstæð varmadæla
kyrrstæður brunavarnarbúnaður
kælieiningar í kælibifreiðum og kælivögnum
rafknúin rofbúnaður
Rankine-hringrásir fyrir lífræna drifmiðla
Til hagræðis hefur Umhverfisstofnun útbúið sniðmát fyrir skráahald sem hægt er að nálgast hér ásamt PDF afriti. Sniðmátið geta aðilar sem þjónusta búnað prentað sjálfir út til útfyllingar, skilið frumrit eftir hjá rekstraraðilum og haldið sjálfir afriti, eins og áskilið er í reglugerð (ESB) nr. 517/2014.