Eftirlit

Markmið eftirlitsins er að sjá til þess að lögum og reglum sé framfylgt. Í því felst meðal annars að hækka söfnunarhlutfall þessa úrgangs og sjá til þess að upplýsingagjöf til viðskiptavina sé framfylgt. Því er mikilvægt að verkefnið sé unnið í góðu samstarfi við aðila á markaði og að allir hlutaaðeigandi komi að því að hvetja notendur til að skila úrganginum rétt af sér. Umhverfisstofnun hefur sett upp eftirlitsáætlun til ársloka 2023. Í henni er lögð áhersla á eftirlit með skyldum sveitarfélaga um móttöku rafhlaða, rafgeyma og raf- og rafeindatækjaúrgangs í samstarfi við heilbrigðieftirlitin. Þá verður farið í eftirlit til þeirra sem framleiða rafhlöður, rafgeyma og raf- og rafeindatæki á Íslandi og áhersla lögð á fræðslu og miðlun á þessum málaflokki.

Raftækjaúrgangur er sá úrgangsflokkur sem er hvað mest vaxandi í heiminum og var söfnun á raftækjum á undanförnum árum hefur aðeins verið um 40% á Íslandi, en hæst var söfnunarhlutfallið 45% árið 2017. Markmið ársins 2019 var hinsvegar 65%. Því er mikilvægt að fræða almenning og fyrirtæki um söfnun og rétta förgun á slíkum úrgangi.

Umhverfisstofnun er heimilt að óska eftir upplýsingum frá tolla- og skattayfirvöldum um heildarmagn, magn í einstökum flokkum og magn frá einstökum framleiðendum og innflytjendum vegna framleiðslu og innflutnings á raf- og rafeindatækjum sem falla undir lögin.