Snyrtivöruvefgátt ESB - CPNP
Áður en snyrtivara er markaðssett innan Evrópska efnahagssvæðsins skal ábyrgðaraðili tilkynna/skrá vöruna með rafrænum hætti í snyrtivöruvefgátt ESB (Cosmetic Products Notification Portal, CPNP). Þetta á við um framleiðendur snyrtivara, aðila sem markaðssetur snyrtivöru undir sínu nafni eða vörumerki eða breytir vöru sem þegar hefur verið sett á markað og aðila sem flytur snyrtivöru í fyrsta sinn inn á EES svæðið.
Leiðbeiningar eru til á íslensku og ensku um það hvernig standa eigi að skráningu í CPNP.
Upplýsingar sem þarf að skrá í CPNP
Almennar upplýsingar
- Flokkur og heiti vöru.
- Nafn og heimilisfang ábyrgðarmanns og samskiptaupplýsingar.
- Upprunaland snyrtivöru.
- Ríki innan EES þar sem markaðssetja á snyrtivöru.
- Ljósmynd af vöru/umbúðum.
- Mynd af miða á umbúðum og/eða sýna texta á umbúðum. Allar skyldubundnar merkingar eiga að sjást á miðanum.
Efnaupplýsingar
- Rammasamsetning vöru, nákvæmt efnainnihald og styrk efna eða efnainnihald og styrkleikabil efna (um er að ræða þrjá kosti sem valið er á milli)
- CMR efni (ef eru í vöru) og auðkenni þeirra.
- Nanóefni (ef eru í vöru), auðkenni (IUPAC heiti), stærð agna, eiginleikar, magn, eiturefnafræði, öryggi og váhrif nanóefnis.
Nánari upplýsingar um þau gögn sem ber að skrá má finna í 13. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009.