Ársfundur Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa er að þessu sinni í formi þriggja rafrænna funda sem haldnir verða í apríl. Dagana 8., 15. og 28. apríl kl. 9:00-10:30 verður boðið upp á opna fundi með fjölbreyttum erindum sem varða náttúruvernd og umhverfismál í starfsemi sveitarfélaga. Fundirnir eru samstarfsverkefni Umhverfisstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og náttúrustofa.
Fyrsti fundurinn fór fram þann 8. apríl kl. 9:00-10:30 og bar hann yfirskriftina Loftslagsmál, loftgæði og sveitarfélög. Nálgast má upptökur af erindum fundarins hér að neðan.
Annar fundurinn sem fram fer þann 15. apríl kl. 9:00-10:30 ber yfirskriftina Vannýtt þekking í heimabyggð? Hvernig geta náttúrustofur stutt við starf náttúruverndarnefnda? Nálgast má upptökur af erindum fundarins hér að neðan.
Þriðji fundurinn sem fram fer þann 28. apríl kl. 9:00-10:30 ber yfirskriftina Greiðum götu hringrásarhagkerfisins - Nýting hráefna úr úrgangi.
Loftslagsmál, loftgæði og sveitarfélög
09:00-09:05 Forstjóri Umhverfisstofnunar, Sigrún Ágústsdóttir setur fundinn
09:05-09:20
Vinna við tillögu að stefnu stjórnvalda um aðlögun að loftslagsbreytingum - Halla Sigrún Sigurðardóttir, Umhverfis- og auðlindaráðuneyti
09:20-09:35 Loftslagsvæn sveitarfélög – verkfærakista um loftslagslagsmál í rekstri sveitarfélaga - Eygerður Margrétardóttir, Samband íslenskra sveitarfélaga
09:35-09:45 Fyrirspurnir og umræður
09:45-10:00
Losunarbókhald Íslands - Sigríður Rós Einarsdóttir, Umhverfisstofnun
10:00-10:15
Náttúruvá - Loftgæðavöktun - Þorsteinn Jóhannsson, Umhverfisstofnun
10:15-10:30 Fyrirspurnir og umræður
Vannýtt þekking í heimabyggð?
Hvernig geta náttúrustofur stutt við starf náttúruverndarnefnda?
09:10-09:20 Guðrún Óskarsdóttir (Náttúrustofa Austurlands) og Lilja Jóhannesdóttir (Náttúrustofa Suðausturlands): Náttúruvernd og byggðaþróun.
09:20-09:30 Guðrún Magnea Magnúsdóttir (Náttúrustofu Vesturlands): Umhverfisvottun sveitarfélaga – leið til framfara í umhverfismálum?
09:30 – 09:45 Fyrirspurnir og umræður
09:45-09:55 Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (Náttúrustofu Norðausturlands): Kortlagning framandi ágengra plöntutegunda í Þingeyjarsveit.
09:55-10:05 Skarphéðinn Guðmundur Þórisson (Náttúrustofu Austurlands): Framtíð stöðvarkóngs, tegund eða "viðundur"?
10:05-10:15 Róbert A. Stefánsson (Náttúrustofu Vesturlands): Fuglalíf í Borgarvogi.
10:15 – 10:30 Fyrirspurnir og umræður
Greiðum götu hringrásarhagkerfisins
Nýting hráefna úr úrgangi
Hlekk á fundinn má nálgast hér: ust.is/fundur20210428
09:00- 09:10 Ávarp, Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings
09:10-09:25 Allir græða - innlend moltuframleiðsla, Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri SORPU bs.
09:25-09:40 Moltugerð – reglugerðakröfur, Valgeir Bjarnason fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun
09:40-09:50 Fyrirspurnir og umræður
09:50-10:05 Umhverfisstefna landbúnaðarins, Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og Unnsteinn Snorri Snorrason framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda
10:05-10:20 Hey, heyrúlluplast! Innlend endurvinnsla og verðmætasköpun, Sigurður Halldórsson framkvæmdastjóri Pure North Recycling
10:20-10:30 Fyrirspurnir og umræður