Markmið Umhverfisstofnunar Evrópu er að efla sjálfbæra þróun og að taka þátt í að koma á verulegum og mælanlegum framförum og að setja saman viðeigandi og áreiðanlegar upplýsingar til stefnumótenda og almennings.
IOC er milliríkjastofnun sem komið var á legg af Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) árið 1960.
Árið 1972 var haldin umhverfismálaráðstefna í Stokkhólmi. Henni lauk með samþykkt sérstakrar áætlunar í umhverfismálum, sem er nefnd umhverfismálaáætlun Sameinuðu þjóðanna. Til þess að framfylgja meginreglum Stokkhólmsráðstefnunnar var UNEP komið á laggirnar til að sjá um alþjóðlegt eftirlit með umhverfismálum.
IMO er ein af alþjóðastofnunum Sameinuðu þjóðanna og var stofnuð árið 1958. Helsta hlutverk stofnunarinnar er að stuðla að öruggum og hagkvæmum siglingum með alþjóðlegu samstarfi og koma í veg fyrir mengun sjávar frá skipum. Auk þess fylgist stofnunin með því að aðildarríki innleiði alþjóðlega samninga er varða siglingar skipa með réttum hætti og tryggi framkvæmd þeirra.
Norðurskautsráðið var stofnað í Ottawa 19. september 1996 í því skyni að efla samvinnu, samhæfingu og samskipti um málefni norðurslóða milli norðurskautsríkjanna, með virkri þátttöku frumbyggjasamtaka á norðurslóðum og annarra íbúa þar. Kanada, Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur, Rússland, Svíþjóð og Bandaríkin eru þau ríki sem eru aðilar að ráðinu en auk þess eiga sex samtök frumbyggja fastafulltrúa í ráðinu. Þá eiga 12 ríki utan Norðurslóða og ýmis samtök og stofnanir áheyrnarfulltrúa í Norðurskautsráðinu.
Sex vinnuhópar starfa innan Norðurskautsráðsins sem samanstanda af fulltrúum frá sérsviðum ráðuneyta, starfsmönnum opinberra stofnana og vísindamönnum: