Lærum hvert af öðru og öxlum ábyrgð
Miðvikudaginn 26. maí kl. 14:00 á vefnum
Í aðgerðaáætlun um plastmálefni eru fyrirtæki í íslensku atvinnulífi meðal annars hvött til að leggja áherslu á ábyrga notkun plasts í stefnum sínum, nýta þær lausnir sem til eru og skapa nýjar lausnir þar sem það er mögulegt.
Grænvangur er ábyrgur fyrir aðgerð um „ábyrga notkun plasts í atvinnulífinu“ í samstarfi við samtök, fulltrúa og félög úr atvinnulífinu, ásamt Umhverfisstofnun.
Með þessum viðburði er ætlunin að vekja athygli atvinnulífs á þeim sóknarfærum sem felast í að auka virði vöru og þjónustu með því að nýta plast með ábyrgum hætti í starfsemi sinni og draga úr plastnotkun þar sem það er mögulegt. Markmiðið er að atvinnulífið grípi til aðgerða til að draga úr notkun plasts og auka hlut endurunnins plasts. Sjá dagskrá að neðan.
SKRÁ MIG Á VIÐBURÐ
Hlekkur á streymi verður sendur út þegar nær dregur.
DAGSKRÁ:
Ávarp
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
Sögur úr atvinnulífinu
- Framleiðendur í fararbroddi í skilum og endurvinnslu
Einar Magnússon, forstjóri CCEP
- Ein jörð, einn sjór
Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri samfélagsábyrgðar, nýsköpunar og
fjárfestatengsla hjá BRIM
- Engin ein einföld lausn
Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar
Fróðleiksmolar úr kerfinu
- Erindið um það sem er bannað
Gró Einarsdóttir, Sérfræðingur á sviði loftlagsmála og græns samfélags hjá Umhverfisstofnun
- Úrvinnslusjóður – hagrænir hvatar
Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs
- Greiðum götu hringrásarhagkerfisins með samræmdum merkingum
Eygerður Margrétardóttir, formaður FENÚR
Jákvæð verkefni og lausnir
- Fyrstu skrefin í átt að hringrásarhagkerfinu
Börkur Smári Kristinsson, rannsókna- og þróunarstjóri Pure North Recycling
- Plastlaus september
Þórdís V. Þórhallsdóttir, fræðslustjóri hjá Plastlausum september