Tillaga að starfsleyfi Veiðifélags Eystri-Rangár að Eyjarlandi
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Veiðifélag Eystri-Rangár að Eyjarlandi í Bláskógarbyggð. Um er að ræða landeldi með fráveitu í ferskvatn þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 20 tonn og ársframleiðsla ekki yfir 20 tonn.
Að mati Umhverfisstofnunar munu helstu áhrif vera í formi næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu sem munu verða losuð í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn þar sem frárennsli er hreinsað með settjörnum áður en því er veitt í viðtakann. Í starfsleyfi eru ákvæði þar sem hægt er að gera aukna kröfum um hreinsun fari rekstaraðili yfir þau mörk sem sett hafa verið í leyfið.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202003-254. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 21. júní 2021.
Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.