Álafoss, Mosfellsbæ - viðbót

Mynd: Ingibjörg M. Bjarnadóttir

Umhverfisstofnun, í samstarfi við Mosfellsbæ, vinnur að gerð viðbótar við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Álafoss en fossinn og nánasta umhverfi hans, ásamt Álanesskógi, var friðlýst sem náttúruvætti með auglýsingu nr. 461/2013. Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Álafoss tók gildi 7. október 2020 með auglýsingu nr. 1023/2020.

Nánar um náttúruvættið

Mosfellsbær stefnir á að gera Álanesskóg að útivistarskógi með áningarstöðum og trjákurluðum stígum. Samkvæmt 2. mgr. 10. gr. auglýsingar um friðlýsingu Álafoss skulu framkvæmdir vera í samræmi við gildandi skipulagsáætlun og verndar- og stjórnunaráætlun. Í gildandi stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Álafoss er ekki fjallað sérstaklega um stöðu og stefnu í Álanesskógi og er því hafist handa við að útbúa viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun sem tekur til skógarins enda eru áform Mosfellsbæjar í samræmi við markmið friðlýsingar. Gert er ráð fyrir að formlegt kynningarferli viðbótarinnar hefjist í júlí nk. og að lokaútgáfa verði tilbúin til staðfestingar ráðherra í ágúst 2024. Þann 10. maí 2024 auglýsti Mosfellsbær tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Álanesskóg. 

Frekari upplýsingar veita Ingibjörg M. Bjarnadóttir, ingibjorgb@umhverfisstofnun.is og René Biasone, rene.biasone@umhverfisstofnun.is eða í síma 591-2000.

Tengd skjöl:
Samráðsáætlun