Samantekt fyrir 2023

Inngangur

Umhverfisstofnun er falið að fara með eftirlit með markaðssetningu, afhendingu, merkingum og gerð og samsetningu plastvara sem falla undir laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með samræmdum hætti á landinu öllu. Eftirlit er framkvæmt í samræmi við eftirlitsáætlun sem stofnunin setur fram til eins árs í senn. Eftirlitsáætlun fyrir árið 2023 var samþykkt og birt á vef stofnunarinnar þann 10. júlí 2023.

Markmið eftirlitsins er að fylgja eftir banni og endurgjaldskröfu á burðarpokum og tilteknum einnota plastvörum og fá yfirlit um stöðu mála hjá atvinnulífinu. Eftirlitsþættir fyrir árið 2023 voru þeir sömu og fyrir 2022 eða eftirfarandi:

  • Bann við afhendingu burðarpoka án endurgjalds óháð efnisvali, sbr. 37. gr. b.
  • Bann við afhendingu burðarpoka úr plasti, sbr. 37. gr. c.
  • Bann við að setja tilteknar plastvörur á markað, sbr. 37. gr. e.
  • Endurgjald sem sýnilegt er á kassakvittun við afhendingu tiltekinna einnota plastvara, sbr. 37. gr. f.

Eftirlitsþegar

Val á eftirlitsþegum byggði á fyrirliggjandi upplýsingum hjá Umhverfisstofnun, upplýsingum um fyrirtæki með starfsleyfi frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga, upplýsingum um fyrirtæki frá Skattinum og almennri leit á netinu.

Sama fyrirkomulag og áhersla var haft og við valið á eftirlitsþegum árið 2022, þ.e. að reyna að ná til fyrirtækja sem starfrækja fleiri en eina starfsstöð og þá mögulega líka á landsbyggðinni. Eftir þá síu voru fyrirtæki valin af handahófi með hjálp tölvuforrits og urðu fimm heildsölur, fimm matvöruverslanir og sex veitingasölur fyrir valinu. Reynt var að hafa fjölbreytni í tegundum veitingasala til að ná til breiðs hóps svo hægt væri að fá heildræna mynd.

Fyrirtæki
Starfsemi
Rekstrarvörur ehf.
Heildsala
Íslensk dreifing ehf.
Heildsala
Ísco heildverslun ehf.
Heildsala
K. Richter hf.
Heildsala
Plastiðjan ehf.
Heildsala
Iceland (Samkaup hf.)
Matvöruverslun
Kjörbúðin (Samkaup hf.)
Matvöruverslun
Heimkaup ehf.
Matvöruverslun
Verslun 10/11 (Orkan IS ehf.)
Matvöruverslun
Verslun Einars Ólafssonar
Matvöruverslun
Ísbúð Vesturbæjar ehf.
Ísbúð
Kaffitár ehf.
Kaffihús
Brauð og co ehf.
Bakarí
Serrano (SÍ hf.)
Skyndibiti
Smárabíó ehf.
Kvikmyndahús með veitingasölu
N1 hf.
Vegasjoppur

Niðurstöður

Enginn frávik komu upp við eftirlit hjá heildsölum. Þær vörur sem bannað er að markaðssetja, sbr. 37. gr. e., hafa ýmisst alfarið horfið eða búið er að skipta út einnota plasti fyrir einnota við eða bambus.

Smá misskilnings gætti hjá nokkrum matvöruverslunum um að lögin giltu ekki um lífplast eða plast sem er lífbrjótanlegt. Ákvæði laganna gilda hins vegar um plast óháð því hvort það er framleitt úr jarðolíu eða af lífrænum uppruna (lífplast). Að sama skapi gilda ákvæðin óháð því hvort plastið sem um ræðir sé lífbrjótanlegt (e. biodegradable), endurvinnanlegt (e. recyclable) eða moltanlegt (e. compostable). Aðeins ein verslun var með frávik sem þurfti að bæta úr og snéri það að endurgjaldi vegna einnota kaffimála.

Nokkuð var um frávik hjá veitingasölum vegna endurgjaldskröfu tiltekinna einnota matar- og drykkjaríláta sem kveðið er á um í 37. gr. f. Helmingur fyrirtækjanna þurftu að bæta þar úr. Mætti því segja að flestu frávikin séu vegna endurgjaldskrafna. Markaðssetning tiltekinna einnota plastvara sem falla undir ákvæði banns skv. 37. gr. e. er almennt í góðum málum hjá veitingasölum og var yfirleitt búið að klára birgðir af þeim og skipta út fyrir staðgöngukosti.

Við birtingu þessarar samantektar eru tvö útistandandi mál, ein heildsala og ein veitingasala.