Úttekt á tollafgreiðslu plöntuverndarvara 2023

Tilgangur og markmið:

  • Að leggja mat á það hve mikið af plöntuverndarvörum berast til landsins á hverju ári með hliðsjón af upplýsingum um tollafgreiðslur frá Tollgæslunni og frá þeim fyrirtækjum sem markaðssetja þessar vörur.
  • Að athuga hvort tollflokkun sé hugsanlega ábótavant, leiðrétta og leiðbeina hlutaðeigandi fyrirtækjum um tollflokkun þannig að upplýsingar um tollafgreiðslu plöntuverndarvara gefi raunsanna mynd af því hve mikið er sett af þessum vörum á markað hér á landi.

Framkvæmd og helstu niðurstöður:

Í úttektinni var athyglinni beint að plöntuverndarvörum í eftirfarandi tollflokkum:

  • 3808.9102: Skordýraeyðir sem plöntulyf (plöntuverndarvara)
  • 3808.9202: Sveppaeyðir sem plöntulyf (plöntuverndarvara)
  • 3808.9300: Illgresiseyðir (plöntuverndarvara)
  • 3808.9309: Annað

Gögn frá Tollgæslunni um tollafgreiðslu ásamt gögnum frá fyrirtækjum sem markaðssetja plöntuverndarvörur voru nýtt til að taka saman upplýsingar um það hve mikið af vörunum var sett á markað á árinu 2023. Samkvæmt úttektinni fengu sjö fyrirtæki tollafgreiddar plöntuverndarvörur á árinu.

Alls voru tollafgreidd 13,9 tonn af plöntuverndarvörum á árinu 2023 og hefur magnið dregist lítillega saman á milli áranna 2022 og 2023, eða um 5% (mynd 1). Gögn sem Umhverfisstofnun hefur tekið saman um tollafgreiðslu á plöntuverndarvörum undanfarin ár sýna þá þróun að innflutningur þessara vara hefur dregist saman. Talsverðar sveiflur eru þó milli ára. Meginástæður þess eru að fluttar eru inn stórar sendingar af vörum sem tekur nokkur ár að selja eða að upp koma vandamál í plöntuvernd sem kalla á aukna notkun plöntuverndarvara til að koma í veg fyrir tjón eða uppskerubrest. Af þeim plöntuverndarvörum sem fluttar voru inn árið 2023 reyndust 66% vera illgresiseyðar og stýriefni, en 34% skordýra- og sveppaeyðar. Illgresiseyðar voru stærsti hluti plöntuverndarvara á markaði á árinu 2023. Þó svo að innflutningur á plöntuverndarvörum hafi smám saman dregist saman hefur hann aukist lítillega aftur síðustu ár og er yfir áhættuvísi vegna innflutnings plöntuverndarvara í kg alls (12.000 kg/ári) sem settur er fram í Aðgerðaráætlun um notkun plöntuverndarvara 2016-2031.

 

Mynd 1: Tollafgreiðsla á plöntuverndarvörum 2014-2023

Þegar meta á áhrif plöntuverndarvara á heilsu og umhverfi gefur magn virkra efna mun betri vísbendingar um raunverulegt álag heldur en heildarmagn af vörum sem sett er á markað. Þar sem styrkur virku efnanna í plöntuverndarvörum liggur alltaf fyrir er hægt að reikna út hve ákveðið heildarmagn af vörum samsvarar miklu magni af virkum efnum. Sé það reiknað út fyrir innflutning ársins 2023 kemur í ljós að innflutningur á virkum efnum nam 1597 kg og er það 32% samdráttur frá fyrra ári (mynd 2).

 

Mynd 2: Tollafgreiðsla á plöntuverndarvörum 2009-2023 í kg af virkum efnum

Á mynd 2 má sjá að innflutningur á plöntuverndarvörum mældur í kg af virkum efnum hefur smám saman dregist saman frá 2009, þó svo að innflutningur hafi aukist lítillega aftur á undanförnum þremur árum. Áhættuvísir vegna innflutnings á plöntuverndarvörum í kg af virku efni er 3000 kg af virku efni á ári samkvæmt Aðgerðaáætlun um notkun varnarefna 2016-2031. Frá árinu 2017 hefur innflutningur verið undir þessum áhættuvísi þrátt fyrir að hafa ekki verið undir áhættuvísi vegna heildarmagns innfluttra plöntuverndarvara nema hluta þess tímabils, sbr. mynd 1. Mikill samdráttur hefur verið í innflutningi á plöntuverndarvörum til almennrar notkunar undanfarin ár, sbr. mynd 2.