Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu leyfis, dags. 10. mars 2025, fyrir ArcticLAS ehf. fyrir afmarkaða starfsemi með erfðabreyttar rottur og mýs í rannsóknaraðstöðu sinni við Krókháls 5d, 110 Reykjavík.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna í greinargerð með leyfinu.

Leyfið er gefið út í samræmi við ákvæði laga nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur og reglugerðar nr. 276/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera. Leyfið hefur þegar tekið gildi og gildir til 10. mars 2041.

Umsagnaraðilar voru ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur og Vinnueftirlitið.

Ákvarðanir Umhverfis- og orkurstofnunar er varða útgáfu leyfa eru samkvæmt 29. gr. laga nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur og sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála skv. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd.  Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu fréttar. 

Fylgiskjöl:
Leyfi með greinargerð
Umsögn ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur
Umsögn Vinnueftirlitsins