Stök frétt

Tillaga að breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar við Bakkafjörð 


Umhverfisstofun auglýsir tillögu að endurskoðuðu starfsleyfi fyrir álver Alcoa Fjarðaáls sf. að Hrauni 1 í Reyðarfirði. Engin breyting er á umfangi starfseminnar og er í tillögunni áfram gert ráð fyrir heimild til framleiðslu á allt að 360.000 tonnum af áli á ári. 

Farið var í endurskoðun starfsleyfisins að frumkvæmi Umhverfisstofnunar vegna nýrra BAT-niðurstaðna.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun ust@ust.is merkt UST202003-451, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6.gr. reglugerðar nr. 550/2018. Ef áhugi er fyrir hendi að halda opinn kynningarfund um starfsleyfistillöguna er bent á að hafa samband við Umhverfisstofnun með slíkt erindi sem fyrst.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 25. nóvember 2024.

Tengd skjöl:
Tillaga að starfsleyfi
Skýrsla um grunnástand
BAT-niðurstöður vegna iðnaðar með járnlausan málm