Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis Lækjarbotnableikju fyrir rekstur landeldis að Lækjarbotnum í Rangárþingi ytra.
Samkvæmt. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfis- og orkustofnunar frá 10. janúar til og með 13. janúar sl.
Framlenging á starfsleyfi Lækjarbotnableikju er hér með veitt og mun gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 15. janúar 2026.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um framlengingu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu hennar.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um framlengingu á starfsleyfi Lækjarbotnableikju