Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Skipaflutningar

Síðast uppfært: 21. október 2025

 

Úthlutun

Þann 26. júní 2025 voru flugrekendur búnir að fá úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum fyrir árið 2024.

Þeir flugrekstraraðilar sem fengu úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum á núverandi viðskiptatímabili má sjá í töflunni hér að neðan ásamt þeim fjölda losunarheimilda sem hverjum var úthlutað. Þessi tafla inniheldur úthlutanir vegna flugs innan EES-svæðisins, til Bretlands og til og frá Sviss. Athugið að viðbótarheimildum sem heimilt er að úthluta endurgjaldslaust til flugrekenda sem fljúga til og frá Íslandi að ákveðnum skilyrðum uppfylltum hefur ekki verið úthlutað og verður taflan uppfærð að því loknu.


2021 2022 2023 2024 2025 
Air Atlanta
0 0 0 2.597
 1.648
Bluebird
6.682
6.532
6.381
11.394
Fly Play
0 0 0 44.214
 28.054
Icelandair 178.955
174.930
170.914
139.106
 83.742
Papier-Mettler
54 53 0 0





 

Uppgjör

Þann 1. október 2025 voru allir flugrekendur á Íslandi nema einn, sem falla undir kerfið, búnir að gera upp losun ársins 2024.

Fimm flugrekendur þurftu að gera upp losun sína fyrir 2024 í íslenska hluta skráningakerfis með losunarheimildir.

Losun frá flugrekendum sem falla undir ETS kerfið á Íslandi var 624.982 tonn af CO₂ ígildum árið 2024 samanborið við 610.029 tonn af CO₂ ígildum árið 2023. Losunin jókst um 2,5% milli 2022 og 2023. Losunin er því orðin meiri en hún var árið 2019 en er þó enn talsvert lægri en hún var þegar hún var sem mest árið 2018.

Hér er þó ekki um alla losun þessara flugrekenda að ræða, heldur eingöngu þá losun sem á sér stað innan EES svæðisins, til Bretlands og til og frá Sviss. Flug utan þess svæðis er ekki innan gildissviðs ETS kerfisins og er losun vegna þess flugs ekki með í þessum tölum. Flug utan ETS kerfisins fellur undir alþjóðlega kerfið CORSIA.

Á gagnvirka grafinu hér að neðan er hægt að skoða staðfesta losun frá 2013 frá öllum flugrekstraraðilum sem gera upp í ETS á Íslandi. Með því að velja strikin þrjú í hægra horninu er hægt að niðurhala gögnunum.

 

Flugrekendur á Íslandi hafa verið hluti af ETS kerfinu frá árinu 2013. Icelandair er eini flugrekandinn sem hefur fallið undir kerfið frá því að það tók gildi á Íslandi. Flugfélag Íslands var einnig með í kerfinu frá upphafi, en eftir að það sameinaðist Icelandair hefur síðarnefndi flugrekstraraðilinn einnig gert upp það flug sem áður heyrði undir Flugfélag Íslands.

WOW air var þátttakandi í kerfinu á meðan það starfaði 2014-2018.

Bluebird og Air Atlanta hafa einnig fallið undir kerfið stóran hluta tímabilsins en þeir flugrekendur eru báðir með litla losun í samanburði við stærri flugrekendur. Bluebird var þátttakandi í kerfinu til 2024.

Fly Play var þátttakandi í kerfinu á meðan það starfaði 2021-2025.

Papier-Mettler hefur verið starfandi lengi en þurfti að gera upp vegna losunar áranna 2021-2022 og 2024 í ETS kerfinu þegar losunin var nægilega mikil til að falla undir kerfið.

Breski flugherinn (UK Royal Air Force) þurfti að gera upp vegna losunar ársins 2024 í ETS kerfinu þegar losunin var nægilega mikil til að falla undir kerfið. Á meðan Bretland var enn í Evrópusambandinu féll breski flugherinn undir bresk stjórnvöld.

Samanburður

Á gagnvirka grafinu hér að neðan er hægt að skoða samanburð á endurgjaldslausum losunarheimildum fyrir alla rekstraraðila á Íslandi í heild sinni og staðfesta losun frá þeim. Með því að velja strikin þrjú í hægra horninu er hægt að hlaða gögnunum niður.