Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á breyttu starfsleyfi fyrir starfsstöð Stjörnugríss hf. að Brautarholti 10, Kjalarnesi. Rekstraraðili hefur heimild til að reksturs svínabús með allt að 4.000 stæðum fyrir eldisvín, þ.e. alisvín frá 30 kg lífþyngd.

Tillaga að breyttu starfsleyfi var auglýst á á tímabilinu 8. nóvember 2024 til og með 6. desember 2024 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Athugasemdir bárust frá tveimur aðilum og er gerð grein fyrir þeim í greinargerð.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl: