Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. á Reykjanesi. Um er að ræða landeldi á laxfiskum með allt að 20.000 tonna hámarkslífmassa. Framkvæmdin er háð umhverfismati skv. lögum nr. 111/2021. Álit Skipulagsstofnunar lá fyrir 18. júlí 2023 en álitið var haft til grundvallar við vinnslu tillögunnar. 

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á netfangið uos@uos.is, merktar UST202302-183. Athugasemdir verða birtar við útgáfu. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 1. júlí 2025. 

Tengd skjöl

Umsókn um starfsleyfi

Tillaga að starfsleyfi fyrir Samherja ehf. Reykjanesi

Drög að vöktunaráætlun

Mat á áhrifum á vatnshlot

Álit Skipulagsstofnunar