Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu starfsleyfis fyrir álver Alcoa Fjarðaáls sf., Reyðarfirði. Rekstraraðili hefur heimild til að framleiða allt að 360.000 tonn af áli á ári.

Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 24. október til og með 25. nóvember 2024 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Athugasemdir bárust frá einum aðila og er gerð grein fyrir þeim í greinargerð.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl
Starfsleyfi Alcoa Fjarðaál sf. Reyðarfirði.