Söluskrár 2023 fyrir plöntuverndarvörur og útrýmingarefni

Tilgangur:

  • Að óska eftir skrám yfir sölu frá þeim sem setja á markað notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni en þessum upplýsingum ber að skila til Umhverfisstofnunar ár hvert, sbr. 24. gr. efnalaga nr. 61/2013.
  • Að athuga hversu mikið magn af notendaleyfisskyldum plöntuverndarvörum og útrýmingarefnum var selt árið 2023 og hve það magn samsvaraði miklu magni af virkum efnum.
  • Að athuga hvort að þeir sem markaðssetja notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni sinni þeirri skyldu sinni að ganga úr skugga um að vörurnar séu einungis afhentar handhöfum gildra notendaleyfa frá Umhverfisstofnun, sbr. 24. gr. efnalaga nr. 61/2013.

 

Framkvæmd og helstu niðurstöður:

Verkefnið náði til allra söluaðila notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Umhverfisstofnun óskaði eftir skrám vegna sölu varanna á árinu 2023 þar sem fram kæmu upplýsingar um vöruheiti, umbúðastærð, fjölda seldra eða afhentra sölueininga af hverri umbúðastærð, dagsetningu sölu, nafn og kennitölu notendaleyfishafa, sem og nafn og kennitölu fyrirtækis (ef við á).

 

Eftirfarandi fyrirtæki féllu undir umfang eftirlitsins:

  • Eco Garden ehf.
  • Garðheimar – Gróðurvörur ehf.                            
  • Grastec ehf.
  • Kemi ehf.
  • NPK ehf.
  • Samhentir Kassagerð hf.
  • Streymi heildverslun ehf.
  • Sölufélag garðyrkjumanna ehf.

 

 Á árinu 2023 voru seldar 42 notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og nam salan alls 6042 kg sem samsvarar 1917 kg af virku efni, sjá nánar í töflu 1. Af notendaleyfisskyldum útrýmingarefnum voru seldar 11 vörur og nam salan alls 9429 kg en það samsvarar 12,2 kg af virku efni, sjá nánar í töflu 2. Bent skal á að styrkur virkra efna í nagdýraeitri er mun minni en í skordýraeitri eða einungis 0,005% og því er magn virkra efna í nagdýraeitri sem selt var mun minna en í skordýraeitri.

Tafla 1 Notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur sem seldar voru árið 2023

 

Illgresiseyðir

Skordýraeyðir

Sveppaeyðir

Stýriefni

Samtals

Fjöldi vara í sölu

15

9

13

4

41

Fjöldi virkra efna

17

9

14

4

44

Sala alls af vörum, kg

2950

444

2462

187

6042

Sala alls (sem kg af virku efni)

1071

33

786

27

1917


Tafla 2 Notendaleyfisskyld útrýmingarefni sem seld voru árið 2023

 

Nagdýraeitur

Skordýraeitur

Samtals

Fjöldi vara í sölu

7

4

11

Fjöldi virkra efna

1

5

6

Sala alls af vörum, kg

8981

448

9429

Sala alls (sem kg af virku efni)

0,449

11,7

12,2

Eingöngu má afhenda notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni til aðila sem hafa gild notendaleyfi frá Umhverfisstofnun. Niðurstöður sem fást úr verkefninu sýna að af alls 133 kaupendum notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara voru 112 (84%) með notendaleyfi í gildi, en í tilfelli 21 viðskiptavinar (16%) var ekki hægt að rekja sölu til notendaleyfis í gildi, þegar kaupin áttu sér stað, út frá framlögðum gögnum seljanda. Alls voru 112 sem keyptu útrýmingarefni á árinu 2023 og var hægt að rekja allar nema eina af þeim sölum til notendaleyfis í gildi þegar kaupin áttu sér stað. Sjá nánar töflu 3.

Tafla 3 Fjöldi notendaleyfishafa sem keypti notendaleyfisskyldar vörur á árinu 2023 og tölfræði gildistíma leyfis þegar kaup fóru fram

 
Notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum
Notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum
 

Fjöldi

%

Fjöldi

%

Kaupandi með leyfi í gildi

112

84%

111

99%

Sala ekki rakin til leyfis í gildi

21

16%

1

1%

Kaupendur alls

133


112


Hlutfall þeirra sem voru með notendaleyfi í gildi við kaup á notendaleyfisskyldum vörum hefur lækkað frá árinu 2022 en þá voru 90% kaupenda notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara með notendaleyfi í gildi þegar kaup fóru fram og 100% kaupenda notendaleyfisskyldra útrýmingarefna. Árið 2023 voru sambærilegar tölur 84% og 99%. Þessa hlutfallslækkun má að miklu en ekki öllu leyti rekja til þess að í einhverjum tilvikum voru gögn frá söluaðilum ekki fullnægjandi að því leyti að erfitt var að rekja sölu á notendaleyfisskyldum vörum til notendaleyfis í gildi. Þetta þarf ekki að þýða að ekki hafi verið gilt notendaleyfi að baki hverrar sölu, heldur aðeins að gögnin takmörkuðu að hægt væri að staðfesta það. Stofnunin hefur áréttað við söluaðila notendaleyfisskyldra vara, sem skiluðu inn gögnum sem sýndu að ekki var í öllum tilfellum gengið úr skugga um að kaupendur væru með notendaleyfi í gildi, að þeir ræki lagaskyldur sínar hvað þetta varðar.