Eftirlit með plöntuverndarvörum á markaði 2024

Tilgangur og markmið:

  • Að ganga úr skugga um að plöntuverndarvörur sem eftirlitsþegi setur á markað séu með markaðsleyfi í gildi.
  • Að athuga hvort merkingar umbúða séu í samræmi við gildandi reglur þar um.

 

Framkvæmd og helstu niðurstöður:

 

Farið var í eftirlit í maí 2024 hjá fyrirtækjum sem setja plöntuverndarvörur á markað. Úrtakið í eftirlitinu náði til 41 mismunandi plöntuverndarvara í heild. Allar plöntuverndarvörur sem fundust í sölu hjá fyrirtækjunum voru kannaðar með tilliti til markaðsleyfa, sbr. reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur og merkinga á umbúðum varanna, sbr. reglugerð nr 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna eða efnablandna, reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur og reglugerð nr. 1002/2014 um gagnkvæma viðurkenningu á tilteknum markaðsleyfum fyrir plöntuverndarvörum.

 

Eftirfarandi eftirlitsþegar féllu undir umfang verkefnisins:

Fyrirtæki:

Starfsemi:

Eco-Garden ehf.

Innflutningur, heildsala

Garðheimar Gróðurvörur ehf.

Innflutningur, heildsala, smásala

Grastec ehf.

Innflutningur, heildsala

Húsasmiðjan ehf.

Smásala

Kemi ehf.

Innflutningur, heildsala

NPK ehf.

Innflutningur, heildsala

Samhentir Kassagerð hf.

Innflutningur, heildsala

Streymi heildverslun ehf.

Innflutningur, heildsala

Sölufélag garðyrkjumanna ehf.

Heildsala

Samtals voru skoðuð 54 eintök af plöntuverndarvörum og þar af fundust eitt eða fleiri frávik við átta vörur, sem gerir tíðni frávika um 15%. Fimm frávikanna voru vegna ófullnægjandi merkinga og þrjú vegna vara með útrunna undanþágu frá markaðsleyfi. Umhverfisstofnun gerði kröfur um úrbætur sem fyrirtækin hafa brugðist við með fullnægjandi hætti.