Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út áfanga- og verkáætlun sem inniheldur helstu vörður og verkefni við endurskoðun næstu vatnáætlunar 2028-2033.

 

Í áfanga- og verkáætlun er að finna helstu verkefni sem þurfa að fara fram áður en næsta vatnaáætlun tekur gildi árið 2028. Í áætluninni er greint frá forsendum og markmiðum vinnunnar, þeim verkefnum sem eru framundan, tímasetningum opinberra kynninga og samráði.

 

Dæmi um verkefni í áfanga- og verkáætluninni:

  • Gerð aðgerðaráætlunar 2028-2033
  • Endurafmörkun grunnvatnshlota
  • Endurafmörkun yfirborðsvatnshlota
  • Ákvörðun um skilgreiningu tilnefndra mikið breyttra og manngerðra vatnshlota
  • Gerð vöktunaráætlunar 2028-2033

Tengt efni: