Stök frétt

Umhverfisstofnun birtir nú í fyrsta skipti losunarstuðla sem eru aðgengilegir fyrirtækjum, sveitafélögum, stofnunum og öllum þeim sem vilja reikna út losun frá sinni starfsemi. 

Stuðlunum fylgja skýrar leiðbeiningar um hvaða stuðlar henti best til að reikna út losun frá helstu uppsprettum gróðurhúsalofttegunda (GHL) í rekstri fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi.  Markmiðið er að aðstoða sem flesta við að fá haldbæra mynd af losun síns reksturs eða annara athafna.  Auk þess gefa stuðlarnir rekstraðilum tækifæri til að tryggja að upplýsingar um þeirra losun sé í samræmi við þær reiknireglur sem gilda í Landsskýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda, sem íslensk stjórnvöld taka saman og skila til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC).  

Til að glöggva sig á því hvernig nota skal losunarstuðla má segja að þeir séu tölur sem nota má til að  reikna út losun gróðurhúsalofttegunda með því að margfalda þá við viðeigandi grunngögn. T.a.m. er unnt að reikna út magn GHL sem losna við bruna eldsneytis með því að margfalda losunarstuðul fyrir brennt eldsneyti við magn þess eldsneytis sem notað var. 

Umhverfisstofnun vill vekja athygli á verkfærinu Grænt bókhald sem er hluti af verkefninu Græn skref í ríkisrekstri.  Græna bókhaldið gagnast öllum fyrirtækjum, sveitafélögum og ríkisstofnunum sem vilja halda utan um magn eða eðli innkaupa og sömuleiðis losun frá helstu uppsprettum GHL í rekstri sínum. Hægt er að hlaða sniðmátinu niður hér. Þó að Grænu skrefin og Græna bókhaldið séu að svo stöddu hugsuð fyrir ríkisstofnanir þá er ekkert því til fyrirstöðu að fyrirtæki, sveitafélög og hver sá sem hefur áhuga á að halda umhverfis- og kolefnisbókhald nýti sér sniðmát Græna bókhaldsins til þess. Losunarstuðlar Umhverfisstofnunar eru innbyggðir í sniðmátið.

Losunarstuðlana og helstu upplýsingar um þá má finna hér.