Stök frétt

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað upp í dag þann úrskurð að felld er úr gildi ákvörðun Umhverfisstofnunar frá 11. september 2015 um að veita Thorsil ehf. starfsleyfi fyrir rekstri kísilverksmiðju á iðnaðarsvæðinu í Helguvík.  Frestur til að koma að athugasemdum var rangt út reiknaður að mati nefndarinnar miðað við birtingu auglýsingar í Lögbirtingablaðinu og telst fjórum dögum of stuttur miðað við átta vikna athugasemdafrest. Frestur til að koma að athugasemdum var reiknaður út frá birtingu auglýsingar á heimasíðu stofnunarinnar. Í reglugerð er kveðið á um að auglýsa skuli tillögu að starfsleyfi með tryggum hætti s.s. í dagblaði eða staðarblaði.

Umhverfisstofnun þykir þetta miður og mun tafarlaust bæta úr verklagi. Úrskurðurinn gefur ekki til kynna að starfsleyfið sé haldið efnislegum ágöllum. Umhverfisstofnun undirbýr nú nýja auglýsingu starfsleyfisins.