Stök frétt

Vesturbyggð, Umhverfisstofnun, Náttúrustofa Vestfjarða og landeigendur á Rauðasandi ætla að standa fyrir fjöruhreinsun á Rauðasandi í Vesturbyggð laugardaginn 4. júlí frá klukkan 10:00 – 15:00. Hreinsunin fer fram á austurhluta Rauðasands við bæinn Melanes.  Þetta er fyrsti áfangi í hreinsun strandlengjunnar á Rauðasandi sem verður framhaldið á næsta ári. Boðið verður upp á samlokur og drykki að verki loknu.

Þau sem eru tilbúin að leggja hönd á plóg eru vinsamlegast beðin að skrá sig í síma 822-4019 eða senda póst á netfangið hakon@ust.is fyrir föstudaginn 3. júlí. Mæting er við Félagsheimilið á Patreksfirði kl.ukkan 10:00 þar sem sameinast verður í bíla eða á Melanesi klukkan 10:40.

Við vonumst til að sjá sem flesta.