Umhverfisstofnun hefur lagt fram tillögu að náttúruverndaráætlum með 75 svæðum. Friðlýsing allra þessara svæða ásamt friðlýsingu sjaldgæfra tegunda plantna mun tryggja verndun þeirra tegunda fugla og plantna sem helst eru verndarþurfi á landinu, verndun helstu flokka íslenskra jarðminja, verndun mikilvægustu náttúrlegu birkiskóga landsins og verndun mikilvægra vatnakerfa. Tillögur um svæðisbundna friðun eru fæstar nýjar því 68 svæðanna (88%) eru að hluta eða öllu leyti á náttúruminjaskrá og eða nefnd í öðrum heimildum.
Lagt hefur verið fram á Alþingi þingsályktunartillaga um náttúruverndaráætlun 2004–2008. Hægt er að nálgast hana hér
Kaflar 1 - 2 Inngangur - Hugmyndafræði og verklag
Kaflar 3 - 4 Fjölbreytni í íslenskri náttúru - Landslag og landslagsvernd
Kaflar 5 - 6 Friðlýsingar náttúruminja - Náttúruvernd og önnur landnotkun
Svæðistillögurnar 75 skiptast á sjö landshluta á eftirfarandi hátt:
Viðauki 1 - Tillögur á Suðvesturlandi
Á Suðvesturlandi, 10 svæði:
Reykjanes - Eldvörp - Hafnarberg; Rauðimelur; Hraunsvík - Festarfjall; Ögmundarhraun og Selatangar; Brennisteinsfjöll - Herdísarvík; Búrfell - Búrfellsgjá; Álftanes - Skerjafjörður; Grafarvogur; Leiruvogur - Blikastaðakró; Laxárvogur - Hvalfjarðareyri.
Viðauki 2 - Tillögur á Vesturlandi
Á Vesturlandi, átta svæði:
Þingvellir - Skjaldbreiður- Tindaskagi (tilheyrir einkum Suðurlandi); Vatnshornsskógur; Reykjadalsá; Húsafellsskógur; Ystutungugirðing; Hafnarskógur; Álftanes - Akrar - Löngufjörur; Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull (stækkun).
Viðauki 3 - Tillögur á Vestfjörðum
Á Vestfjörðum, 3 svæði:
Látrabjarg - Rauðasandur; Ingólfsfjörður - Reykjafjörður; Snæfjallaströnd - Æðey - Drangajökull - Drangar - Furufjörður.
Viðauki 4 - Tillögur á Norðurlandi vestra
Á Norðurlandi vestra, átta svæði:
Sléttafellshverir; Hópið - Húnavatn - Flóðið; Guðlaugstungur - Álfgeirstungur;
Orravatnsrústir; Fagrahlíð; Austara-Eylendið; Drangey; Héðinsfjörður.
Viðauki 5 - Tillögur á Norðurlandi eystra
Á Norðurlandi eystra, 12 svæði:
Leyningshólar; Hrísey; Hörgárósar; Höfðahverfi; Látraströnd - Náttfaravíkur; Vaglaskógur og nágrenni; Grímsey; Tjörnes ; Öxarfjörður; Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum (stækkun); Melrakkaslétta; Langanes.
Viðauki 6 - Tillögur á Austfjörðum
Á Austfjörðum, 18 svæði:
Hofsá; Fljótsdalshérað; Njarðvík - Loðmundarfjörður; Egilsstaðaskógur; Eyjólfsstaðaskógur; Hallormsstaðaskógur - Ranaskógur; Þingmúli; Eyjabakkar - Vesturöræfi; Kverkfjöll - Krepputunga; Gerpissvæðið; Geithellnadalur; Álftafjörður - Hamarsfjörður; Papey; Austurskógar; Fjalllendi við Hoffellsjökul; Steinadalur; Breiðamerkursandur - Kvíármýrarkambur; Skeiðarársandur (stækkun þjóðgarðsins í Skaftafelli).
Viðauki 7 - Tillögur á Suðurlandi
Á Suðurlandi, 18 svæði :
Skaftáreldahraun; Grenlækur - Eldvatn; Veiðivötn; Þórsmörk; Þjórsárver (stækkun friðlands); Hekla; Hvítárvatn - Hvítárnes; Geysir; Almenningur; Brúará - Skálholtstungur - Höfðaflatir; Apavatn - Laugarvatn; Þingvellir - Skjaldbreiður - Tindaskagi; Sog; Stokkseyri - Eyrarbakki; Grændalur; Vestmannaeyjar; Eldborgir við Lambafell; Brennisteinsfjöll - Herdísarvík (tilheyrir einkum Suðvesturlandi)
Viðauki 8 - Friðlönd á Íslandi
Viðauki 9 - Náttúruvætti á Íslandi
Viðauki 10 - Fólkvangar á Íslandi
Viðauki 11 - Friðlýstar plöntur á Íslandi
Viðauki 12 - Mosar sem þarfnast verndar
Viðauki 13 - Fléttur sem þarfnast verndar
Viðauki 14 - Háplöndur sem þarfnast verndar
Viðauki 15 - Fuglar í náttúru Íslands
Viðauki 16 - Plöntur sem lagt er til að vernda sérstaklega
Viðauki 17 - Tillögur og ábendingar sveitarfélaga
Viðauki 18 - Náttúruvernd í íslenskum lögum
Viðauki 19 - Alþjóðlegir samningar um náttúruvernd
Viðauki 20 - Annað fjölþjóðlegt samstarf á sviði náttúruverndar
Viðauki 21 - Fagstofnanir í rannsóknum á náttúru- og menningarminjum