Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu leyfis Lífvísindaseturs Háskóla Íslands, fyrir afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera, í húsnæði rekstraraðila að Vatnsmýrarvegi 16, 101 Reykjavík og Sturlugötu 8, 102 Reykjavík.

Um er að ræða leyfi fyrir afmarkaðri notkun erfðabreyttra örvera af flokki 1 og 2, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 275/2002 um afmarkaðanotkun erfðabreyttra örvera. Nánari upplýsingar má finna í greinargerð með leyfinu.

Leyfið er gefið út í samræmi við lög nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur og reglugerð nr. 275/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera. Leyfið hefur þegar tekið gildi og gildir til 10. mars 2041.

Umsagnaraðilar voru ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur og Vinnueftirlitið.

Umhverfis- og orkustofnun bendir á að skv. 29. gr. laga nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur sæta ákvarðanir Umhverfis- og orkustofnunar er varða veitingu leyfis, kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá auglýsingu ákvörðunarinnar, skv. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. 

Fylgiskjöl:
Leyfi með greinargerð
Umsögn ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur
Umsögn Vinnueftirlitsins