Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að breytingu á starfsleyfi Málningar hf., kt. 450269-4849.

Málning hf. er með gilt starfsleyfi frá 20. júní 2016 til 20. júní 2032 til framleiðslu á málningu.

Tillagan felur í sér breytingu  á 1. ml. 1. mgr. greinar 3.4. í starfsleyfinu þar sem gerður er áskilnaður um að leysiefni skuli geyma við minna en 20°C hita. Breytingartillagan heimilar geymslu leysiefna við ≤25°C hitastig.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun uos@uos.is merktar UST202412-206.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 5. mars 2025.

Tengd skjöl:
Tillaga að breytingu á starfsleyfi Málningar hf.                                    
Starfsleyfi Málningar hf.