Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur.

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um að framlengja bráðabirgðaheimild SKOTREYNAR., kt. 440687-1809, til rekstrar skotvallar á Álfsnesi. 
SKOTREYN óskaði eftir framlengdri  bráðabirgðaheimild til áframhaldandi reksturs skotsvæðis á Álfsnesi á meðan unnið er að útgáfu starfsleyfis hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

Samkvæmt 6. mgr. 7. gr. a. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 er Umhverfis- og orkustofnun  heimilt að framlengja bráðabirgðaheimild um allt að eitt ár að uppfylltum skilyrðum 7. gr. a. laganna. 
Gildandi bráðabirgðaheimild SKOTREYNAR gildir til 5. janúar nk. Umhverfis- og orkustofnun hefur ákveðið að framlengja bráðabirgðaheimildina þar til starfsleyfið hefur verið gefið út en þó eigi lengur en til eins árs, til 5. janúar 2026.
Áform um framlengingu voru auglýst frá 2. janúar til hádegis 3. janúar 2025 en engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar.

Núgildandi bráðabirgðaheimild
Ákvörðun um framlengingu bráðabirgðaheimildar SKOTREYNAR