Stök frétt

Umhverfisstofun auglýsir tillögu að breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar Langanesbyggðar, kt. 420369-1749, við bakkafjörð.
Urðunarstaðurinn við Bakkafjörð er með gilt starfsleyfi frá 21. mars 2018 til að taka á móti og urða allt að 200 tonn af úrgangi á ári sem gildir til 21. mars 2034.
Tillagan felur í sér að fella brott ákvæði í  7. - 11. tl. í 1. mgr. gr. 4.1 í starfsleyfinu þar sem gerður er áskilnaður um skráningu á daglegum veðurathugunum.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merktar UST202201-0258.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 21. janúar 2025.

Tengd skjöl:

Tillaga að breytingu á starfsleyfi - Urðun við Bakkafjörð

Starfsleyfi_- Urðun við Bakkafjörð