Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að nýju starfsleyfi fyrir Reykjanesbæ til urðunar á óvirkum úrgangi á Njarðvíkurheiði. 
Tillagan gerir ráð fyrir móttökustöð, geymslusvæði og urðunarstað fyrir óvirkan úrgang á Njarðvíkurheiði. Urðunarstaðurinn er staðsettur á Njarðvíkurheiði, nánar tiltekið 1 km sunnan við Reykjanesbraut og í 1,3 km fjarlægð frá næstu byggð, Innri Njarðvík. Starfsleyfistillagan gerir ráð fyrir að rekstraraðila sé heimilt að taka á móti og urða að hámarki 15.000 tonn á ári af óvirkum úrgangi. Áætlað er að í heildina verði hægt að urða u.þ.b. 230.000 m3 af óvirkum úrgangi innan urðunarstaðarins.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun ust@ust.is merkt UST202402-280, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Ef áhugi er fyrir hendi að halda opinn kynningarfund um starfsleyfistillöguna er bent á að hafa samband við Umhverfisstofnun með slíkt erindi sem fyrst. 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 20. janúar 2025.

Tengd skjöl
Tillaga að starfsleyfi
Almenn umsókn
Umsókn frá rekstraraðila
Ákvörðun um matsskyldu frá Skipulagsstofnun