Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis Steinullar hf. fyrir rekstur steinullarverksmiðju á Sauðárkróki. 

Samkvæmt. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfisstofnunar 5. apríl til og með 15. apríl sl.

Framlenging á starfsleyfi Steinullar hf. er hér með veitt og mun gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 1. maí 2025.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar um framlengingu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu hennar.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um framlengingu starfsleyfis