Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Arnarlax ehf. Gileyri við Tálknafjörð. Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 6. nóvember til og með 5. desember 2023 þar sem hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma.
Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Arnarlax ehf.
Starfsleyfi Arnarlax ehf. Gileyri