Umsókn um starfsleyfi – Icelandic Land Farmed Salmon ehf.
Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn fyrirtækisins Icelandic Land Farmed Salmon ehf. um starfsleyfi vegna seiðaeldisstöðvar í Friðarhöfn, Vestmannaeyjum.
Í framhaldi verður unnin tillaga að starfsleyfi og þegar hún liggur fyrir er gert ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur.
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.