Stök frétt

Mynd tekin af vef Arnarlax ehf.


Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun að gefa út breytingu á leyfi Arnarlax ehf. í Patreks- og Tálknafirði. Breytingin felur í sér breytingu á svæði í Patreksfirði þar sem eitt svæði er fellt niður og annað heimilað. Einnig voru gerðar breytingar og uppfærslur á leyfinu til samræmis við nýjustu leyfi sem gefin eru út af stofnuninni, allar breytingar má sjá í hornklofum í leyfinu.

Tillaga að breyttu leyfi var auglýst á tímabilinu 20. apríl 2022 til og með 19. maí 2022 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Ein athugasemd barst vegna tillögunnar á auglýsingatíma og er gert grein fyrir henni í greinargerð. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl:
Ákvörðum um útgáfu
Starfsleyfi
Norrænt BAT