Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Tillaga að breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar við Bakkafjörð 


Mynd: Daniel Sinoca - Unsplash
Umhverfisstofnun auglýsir framlengingu á starfsleyfi Arnarlax ehf. Gileyri sem gildir fyrir fiskeldi með allt að 200 tonna ársframleiðslu. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstaraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlengingin á starfsleyfi er heimil til eins árs en hún mun gilda til 2. desember 2024.

Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202009-273. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 9. nóvember.
Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem framlengja á.