Stök frétt


Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Veiðifélag Ytri-Rangár. Um er að ræða landeldi á laxfiskum að Húsafelli í Borgarbyggð þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 40 tonn. Veiðifélag Ytri-Rangár hefur verið með leyfi til framleiðslu á 300.000 seiðum allt að 40g á sama stað.

Fyrirspurn var send til Skipulagsstofnunar vegna matsskyldu framkvæmdarinnar og birti stofnunin ákvörðun sína þann 28. september 2021 um að hún þyrfti ekki að fara í mat á umhverfisáhrifum. Umhverfisstofnun veitti umsögn í því ferli og gerir ekki athugasemdir við þá niðurstöðu.

Að mati Umhverfisstofnunar munu helstu áhrif vera í formi aukins magns næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu sem munu verða losuð í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn. Fráveitunni er veitt í settjörn sem grófhreinsar vökvann áður en honum er veitt í viðtaka. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu og gera auknar kröfur bendi mælingar til að hreinsun fráveitu sé ábótavant samkvæmt mælingum.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202103-246, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 28. febrúar 2022. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Tillaga að starfsleyfi Veiðifélags Ytri-Rangár Húsafelli
Skipulagsstofnun - Ákvörðun um matsskyldu