Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir framlengingu á starfsleyfi Benchmark Genetics Iceland hf. í Kollafirði í Reykjavík. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstaraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlengingin á starfsleyfi er heimil til eins árs og mun gilda til 15. september 2022 eða þar til nýtt starfsleyfi hefur verið gefið út.

Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202109-047. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 22. september 2021.

Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem framlengja á.