Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur þann 18. október sl. breytt leyfi Hjartaverndar, kt. 600705-0590, fyrir afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera sem var gefið út dags. 27. júní 2013.

Breytingin felur í sér flutning starfseminnar frá Holtasmára 1, 201 Kópavogi í starfsstöð Lífvísindaseturs Háskóla Íslands í Læknagarði, Vatnsmýrarveg 16, 101 Reykjavík. Þess má geta að fyrir hefur Lífvísindaseturs Háskóla Íslands í Læknagarði leyfi frá Umhverfisstofnun fyrir afmarkaða starfsemi með erfðabreyttar örverur frá 2014 í sömu starfsaðstöðu (á 4. og 5.  hæð). 


Umhverfisstofnun leitaði umsagna Vinnueftirlits ríkisins og ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur og gerði hvorugur umsagnaraðili aðthugasemd við breytinguna. Ekki er um að ræða breytingu á áhættumati né afmörkunarflokki starfseminnar. 
Umhverfisstofnun óskaði eftir frekari upplýsingum frá rekstraraðila um flutning og aðstöðu í Læknagarði og hefur móttekið þær. Stofnunin telur fullnægjandi upplýsingar hafi komið frá rekstraraðila til að heimila breytingu á leyfinu í samræmi við ákvæði 1.4.