Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist erindi frá Kölku sorpeyðingarstöð sf. (Sorpeyðingarstöð Suðurnesja) um að gerðar verði breytingar á starfsleyfi stöðvarinnar. Erindið snýr að aflögðum fiskikörum á vegum rekstaraaðila sem bíða á lóð gömlu sorpbrennslunnar við Hafnarveg í Reykjanesbæ. Geymsla fiskikaranna þar rúmast ekki innan þess umfangs sem afmarkað er í starfsleyfi rekstraraðila.

Í erindi fyrirtækisins er óskað eftir að Umhverfisstofnun:

  1. Veiti heimild til geymslu framangreindra efna um óákveðinn tíma, á meðan leitað er lausna og ákvörðunar um mögulega endurvinnslu eða förgun.
  2. Veiti heimild til þess að efnin verði hökkuð á svæðinu við gömlu sorpbrennsluna áður en þau verða flutt til endurvinnslu eða förgunar.

Umhverfisstofnun mun leita nánara samráðs við rekstraraðila um farveg fyrir lausn þessa máls.