Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur fellt úr gildi fjögur starfsleyfi ORF Líftækni hf. á starfsstöðvum rekstraraðila við; Vörðusund (Frævinnslan) í Grindavík, Reyki í Hveragerði, Barra á Egilsstöðum og Kleppjárnsreyjum í Borgarfirði, fyrir afmarkaða starfsemi með erfðabreyttar plöntur. Starfsleyfin voru gefin út á milli 2010-2012. Starfsemi á starfsstöðvum hefur verið lögð niður en sótt var um niðurfellingu starfsleyfa þann 19. febrúar sl. Farið var í eftirlitsferðir á starfsstöðvar vegna niðurfellingar en engin frávik voru skráð.

Starfsleyfin eru felld úr gildi frá og með 11. júní 2018.

 

Tilkynning um niðurfellingu starfsleyfa ORF