Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Úttekt á tollafgreiðslu plöntuverndarvara 2024

Tilgangur og markmið:

  • Að leggja mat á hve mikið af plöntuverndarvörum berast til landsins á hverju ári með hliðsjón af upplýsingum um tollafgreiðslur frá Tollgæslunni og frá þeim fyrirtækjum sem markaðssetja plöntuverndarvörur.
  • Að athuga hvort tollflokkun sé hugsanlega ábótavant, leiðrétta og leiðbeina hlutaðeigandi fyrirtækjum um tollflokkun þannig að upplýsingar um tollafgreiðslu plöntuverndarvara gefi raunsanna mynd af markaðssetningu þeirra hér á landi.

Framkvæmd og helstu niðurstöður:

Í úttektinni var athyglinni beint að plöntuverndarvörum í eftirfarandi tollflokkum:

  • 3808.9102: Skordýraeyðir sem plöntulyf (plöntuverndarvara)
  • 3808.9202: Sveppaeyðir sem plöntulyf (plöntuverndarvara)
  • 3808.9300: Illgresiseyðir (plöntuverndarvara)
  • 3808.9309: Annað

Gögn frá Tollgæslunni um tollafgreiðslu ásamt gögnum frá fyrirtækjum sem markaðssetja plöntuverndarvörur voru nýtt til að taka saman upplýsingar um hve mikið af vörunum var sett á markað á árinu 2024. Samkvæmt úttektinni fengu sex fyrirtæki tollafgreiddar plöntuverndarvörur á árinu.

Alls voru tollafgreidd 10 tonn af plöntuverndarvörum á árinu 2024 og dróst magnið saman á milli áranna 2023 og 2024 um 28% (Mynd 1). Gögn sem Umhverfis- og orkustofnun (áður Umhverfisstofnun) hefur tekið saman um tollafgreiðslu á plöntuverndarvörum fyrir árin 2009-2024 sýna þá þróun að innflutningur hefur dregist saman frá árinu 2009. Talsverðar sveiflur eru þó milli ára. Meginástæður þess eru að fluttar eru inn stórar sendingar af vörum sem tekur nokkur ár að selja eða að upp koma vandamál í plöntuvernd sem kalla á aukna notkun plöntuverndarvara til að koma í veg fyrir tjón eða uppskerubrest. Af þeim plöntuverndarvörum sem fluttar voru inn árið 2024 reyndust 67% vera illgresiseyðar og stýriefni, en 33% skordýra-, lindýra- og sveppaeyðar. Illgresiseyðar voru stærsti hluti plöntuverndarvara á markaði á árinu 2024. Innflutningur á plöntuverndarvörum á árinu 2024 var undir áhættuvísi vegna innflutnings plöntuverndarvara í kg alls (12.000 kg/ári) sem settur er fram í Aðgerðaáætlun um notkun plöntuverndarvara 2016-2031.

 

Mynd 1: Tollafgreiðsla á plöntuverndarvörum 2009-2024

Þegar meta á áhrif plöntuverndarvara á heilsu og umhverfi gefur magn virkra efna mun betri vísbendingar um raunverulegt álag heldur en heildarmagn af vörum sem sett er á markað. Þar sem styrkur virku efnanna í plöntuverndarvörum liggur alltaf fyrir er hægt að reikna út hve ákveðið heildarmagn af vöru samsvarar miklu magni af virkum efnum. Sé það reiknað út fyrir innflutning ársins 2024 kemur í ljós að innflutningur á virkum efnum nam um 2417 kg og er það 34% aukning frá fyrra ári (Mynd 2).  

 

Mynd 2: Tollafgreiðsla á plöntuverndarvörum 2009-2024 í kg af virkum efnum

Á mynd 2 má sjá að innflutningur á plöntuverndarvörum mældur í kg af virkum efnum hefur smám saman dregist saman frá 2009, þó svo að innflutningur hafi aukist lítillega aftur á undanförnum fjórum árum. Áhættuvísir vegna innflutnings á plöntuverndarvörum í kg af virku efni er 3000 kr af virku efni á ári samkvæmt Aðgerðaáætlun um notkun plöntuverndarvara 2016-2031. Frá árinu 2017 hefur innflutningur verið undir áhættuvísinum þrátt fyrir að hafa ekki verið undir áhættuvísi vegna heildarmagns innfluttra plöntuverndarvara nema hluta þess tímabils, sbr. mynd 1. Mikill samdráttur hefur verið í innflutningi á plöntuverndarvörum til almennrar notkunar undanfarin ár, sbr. mynd 2.

Töluvert er um að sendingar séu rangt tollflokkaðar sem plöntuverndarvörur og á það sérstaklega við um smærri sendingar til einstaklinga og fyrirtækja annarra en þekktra innflytjenda plöntuverndarvara.