Stök frétt

Mynd: Árni Geirsson - Horft niður í Vöðlavík
Umhverfisstofnun, ásamt sveitarfélaginu Fjarðabyggð og í samstarfi við landeigendur, kynnir hér með áform um friðlýsingu Gerpissvæðisins, milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar. Áformin eru kynnt í samræmi við ákvæði 36. og 38. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. 

Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 1. desember 2020. Frekari upplýsingar hér.

Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.