12. september 2013 | 10:07
Góð heimsókn frá Efnastofnun Evrópu
Efnastofnun Evrópu hefur það að markmiði að heimsækja reglulega öll þau aðildarríki sem innleitt hafa
REACH reglugerðina. Þetta er gert til að stuðla að góðum samskiptum á milli stofnunarinnar og aðildarríkja og veita stuðning. Þann 5. september s.l. kom Maria O‘Shea frá HelpNet deild Efnastofnunar Evrópu í heimsókn til Umhverfisstofnunar og var af því tilefni blásið til upplýsingafundar um skyldur þeirra sem markaðssetja efni, efnablöndur og hluti sem innihalda efni. Fundurinn var haldinn í samstarfi við
Samtök iðnaðarins (SI) og
Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) og mættu hátt 60 manns í húsakynni SI.
Áður en Maria O‘Shea steig í pontu hélt Bryndís Skúladóttir frá SI erindi um mikilvægi þess að vita hvað maður er með í höndunum þegar efnavörur eru annars vegar og Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir frá Umhverfisstofnun fjallaði um ný íslensk efnalög og hvað skal hafa í huga þegar markaðssetja á efni, efnablöndur og hluti sem innihalda efni.
Eftir fundinn heimsótti Maria O‘Shea Umhverfisstofnun, fræddist um skipulag efnamála hér á landi og heilsaði upp á efnateymið. Heimsóknin tókst í alla staði mjög vel.
Myndir
