Frétt

Umhverfisstofnun minnir veiðimenn á að greiða staðfestingargjald fyrir úthlutað hreindýraveiðileyfi. Síðasti mögulegi greiðsludagur er í dag 2. apríl.

Veiðimenn sem greiða ekki á tilskildum tíma afsala sér úthlutuðu leyfi.
 
Ef þú hefur ekki fengið greiðsluseðilinn eða ert búinn að glata honum geturðu millifært viðkomandi upphæð eftir reikningsupplýsingum.

Reikningsnúmer: 305-13-300515
Kennitala móttakanda: 701002-2880
Skýring greiðslu: Kennitala leyfishafa

Upphæð staðfestingargjalds er sem hér segir:

Tarfar á öllum svæðum: kr. 33.750
Kýr á öllum svæðum: kr.. 20.000

Vinsamlegast láttu vita ef þú ert hættur við að taka leyfið.
 
Áður en veiðimaður fer til hreindýraveiða skal hann hafa staðist verklegt skotpróf á síðustu tólf mánuðum. Veiðimaður þarf að skila inn staðfestingu á að hann hafi lokið verklegu skotprófi fyrir 1. júlí ár hvert.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 591-2000