Það nýmæli er nú að á svæði 1 og 2 verða ekki saman í umsókninni eins og áður hefur verið. Menn þurfa að velja í umsókninni á hvort svæðið þeir ætla á.
Nú verða allar kýr á svæði 9 veiddar í nóvember og 22 kýr á svæði 8. Þeir sem sækja um veiði á kú á svæði 9 eru því að sækja um að veiða í nóvember. Þeir sem sækja um kú á svæði 8 verða að velja á milli hvort þeir sækja um veiðinna á hefðbundnum veðitíma, þ.e. 1. ágúst til 20. september eða hvort þeir ætli að veiða í nóvember. Umsóknarfrestur fyrir hreindýraveiðileyfi rennur út á miðnætti 15. febrúar.
Gjald fyrir tarfaleyfi er á öllum svæðum 135.000 kr og á gjald fyrir leyfi á kúm er á öllum svæðum 80.000 kr. Ekki er heimilt að fella hreinkálfa árið 2013.
|
Kýr |
Tarfar |
Alls |
Svæði 1 |
84 |
104 |
188 |
Svæði 2 |
56 |
66 |
122 |
Svæði 3 |
45 |
35 |
80 |
Svæði 4 |
13 |
24 |
37 |
Svæði 5 |
25 |
43 |
68 |
Svæði 6 |
66 |
85 |
151 |
Svæði 7 |
241 |
184 |
425 |
Svæði 8 |
22* /
46 |
45 |
113 |
Svæði 9 |
25* |
20 |
45 |
|
623 |
606 |
1229 |
|
|
|
|
* Veiðitími á 22 kúm á svæði 8 og öllum kúm á svæði 9 verður 1. til 30. nóvember |