Stök frétt

Mynd fengin af heimasíðu Saman gegn sóun
Dagana 18.-26. nóvember næstkomandi stendur Evrópska Nýtnivikan yfir en markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs.

Þema ársins er umbúðir undir slagorðinu Höfum það umbúðalaust!

Fyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir, skólar og almenningur eru hvött til þess að leggja sitt af mörkum til að draga úr notkun einnota umbúða.

Saman gegn sóun og Reykjavíkurborg hafa útbúið einfalt kynningarefni sem nýtist fyrirtækjum og einstaklingum sem vilja prófa sig áfram í umbúðalausum og fjölnota lausnum í Nýtnivikunni. Efnið er unnið upp úr leiðbeiningum Matvælastofnunar:

A4 plakat Nýtnivikunnar í ár
Instagram mynd
Facebook cover mynd
Við tökum þátt í Nýtnivikunni! – Plakat fyrir þátttakendur
Leiðbeiningar fyrir söluaðila um afgreiðslu matvæla í ílát viðskiptavina
Leiðbeiningar fyrir neytendur um notkun fjölnota umbúða

Umhverfisstofnun hvetur öll sem taka þátt í Nýtnivikunni í ár af einhverju tagi; selja umbúðalaust, kaupa umbúðalaust, neyta umbúðalaust, standa fyrir einhvers konar viðburðum eða hvað annað sem er að deila því á samfélagsmiðlum og merkja Saman gegn sóun á Facebook eða Instagram.

#samangegnsoun #umbudalaust #nytnivikan #ewwr2023