Stök frétt

Mynd: Þórdís Björt Sigþórsdóttir

Undanfarið hefur verið unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Kaldárhraun og Gjárnar í landi Hafnarfjarðar sem voru friðlýstar sem náttúruvætti árið 2009.

Gerð áætlunarinnar var í höndum fulltrúa Umhverfisstofnunar og Hafnarfjarðarbæjar.
Tillaga að áætluninni og aðgerðaáætlun í tengslum við hana hefur nú verið lögð fram til kynningar á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Kaldárhraun er eitt síðasta dæmið um heillegt og óraskað helluhraun í landi Hafnarfjarðar. Fræðslu- og útivistargildi svæðisins er metið hátt. Á svæðinu eru fornleifar sem tengjast seljabúskap. Náttúruvættið og umhverfi þess er vinsælt útivistarsvæði og styður vel við stefnu stjórnvalda um lýðheilsu.

Eins og áður segir liggja drög að áætluninni nú frammi til kynningar og er öllum frjálst að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum vegna hennar.

Hér má lesa nánar um Kaldárhraun og Gjárnar og skila inn ábendingum.

Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum varðandi tillöguna er til og með 30. nóvember 2023.