Umhverfisstofnun býður fasteignasölum morgunhressingu og kynningu á Svansvottuðum íbúðum. Eftir kynninguna förum við í skoðunarferð um skrifstofuhúsnæði Umhverfisstofnunar sem lauk Svansvottuðum endurbótum árið 2019.
Viðburðurinn fer fram miðvikudaginn 4. október kl. 9:15 að Suðurlandsbraut 24, 5. hæð.
Í kynningunni munum við fjalla um:
Kynninguna flytja Bergþóra Kvaran og Guðrún Lilja Kristinsdóttir, sérfræðingar í teymi hringrásarhagkerfis.
Nánar um Svansmerkið
Svansvottunarferli bygginga tekur á þáttum eins og innivist, efnanotkun, lágmörkun kolefnisspors, hringrásarhagkerfinu og fleiru.
Meginmarkmið Svansins er að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti.
Umhverfisstofnun er umsjónaraðili Svansvottunarinnar á Íslandi og vinnur náið með skrifstofum Svansins á öllum Norðurlöndunum.