Stök frétt

Mynd: Einar Rafn Guðbrandsson.
Umhverfisstofnun hefur í samráði við Náttúruverndarnefnd Seltjarnarnesbæjar og fenginni umsögn fuglafræðings ákveðið að framlengja lokun Gróttu í Seltjarnarnesbæ fyrir umferð gesta en lokunin gildir til og með 31. júlí. Vinsamlega virðum fuglavarp á svæðinu.

Umrætt svæði er skilgreint sem friðland skv. auglýsingu nr. 13/1984. Samkvæmt auglýsingunni er umferð óviðkomandi fólks bönnuð á tímabilinu 1. maí til 15. júlí. Umhverfisstofnun telur mikilvægt að framlengja lokunina þar sem hætta er á verulegri röskun á fuglalífi ef svæðið verður opnað á þeim tíma sem tilgreindur er í auglýsingunni, enda um viðkvæmt tímabil fuglalífs að ræða. Svæðið nálægt Gróttu, sem og Grótta er vinsælt útivistarsvæði og því mikilvægt að bregðast við sem fyrst.

Um skyndilokun á svæðinu er að ræða sem mun standa yfir til 31. júlí 2023.

Grótta closed
The Environment Agency of Iceland has decided to extend the closing time in Grótta nature reserve in Seltjarnanesbær for protection of birdlife. The area will be closed until 31st July 2023.

Due to danger of disturbance of birdlife leading to impact on nesting success and chick survival. Entering the area is strictly forbidden.